Monday, August 3, 2009









Tuesday, June 23, 2009

Sunday, June 21, 2009


Thursday, May 14, 2009



Uppáhaldið hans Flóka


Hann Daníel


Vá ! haha rosalega er þetta grimm tónlist

Saturday, April 25, 2009

Miniature Fantasies


SAMTÍMAHEIMSPEKI Í SÝNINGU JEANNETTE. JEANNETTE CASTIONI OG ÓLAFUR GÍSLASON SUNNUDAG 26. APRÍL KL. 15

Listamaðurinn Jeannette Castioni og listfræðingurinn Ólafur Gíslason skoða og fjalla um sýningu Jeannette sem nú stendur yfir í D-sal Hafnarhússins. Farið verður í leiðsögn um sýninguna Hver er hræddur við hvern, en að því loknu mun Ólafur fjalla um sýninguna í máli og myndum út frá hugmyndum ítalsaka heimspekingsins Umberto Galimberti um fyrirbærafræði sem komu fram í bókinni Il corpo. Bókin þykir af mörgum tímamótaverk í evrópskri samtímaheimspeki og hefur Ólafur haldið námskeið og rannsakað kenningar hans sem þar koma fram. Sterkt samhengi er á milli kenninga heimspekingsins og innsetningar Jeannette sem skírskota til allra listgreina hvort sem er á sviði myndlistar, leiklistar eða danslistar.

Prinz Gholam



Wolfgang Prinz was born in Leutkirch, Germany, in 1969.
Michel Gholam was born in Beirut, Lebanon, in 1963.
They met in 1993 and work together since 2000.
They work and live in Berlin, Germany.

Skoða betur hér: http://www.galeriewolff.com

Thursday, April 16, 2009

Land art í Second live



Second Live er nokkurskonar tölvuheimur þar sem fólk getur skapað sér persónu og lifað í samfélagi við aðra meðspilara. Þetta er nokkurskonar tölvuleikur nema að leikreglurnar eru að ég held engar og fólkið í leiknum gengur um frjálst og getur gert alla mögulega hluti í þessum tölvuheimi, t.d. byggt sér kastala, klifið hæstu fjöll og jafnvel flogið og keypt sér eignir. En blankir myndlistamenn hafa séð sér leik á borði og látið drauma verða að veruleik, búið til innsetningar á grænum tölvuheims túnum eins og http://www.tommystockel.net/primitives_1.html

Bless Helguvík



Þetta las ég tímaritinu Völlurinn sem þykist fjalla um stjórnmál en fjalla bara um fjármál. Ég gæti ekki verið meira ósammála þessari grein, held að einmitt svona verkefni séu hreint ekki tímabær þar sem fólk er algjörlega komið með upp í kok af flýtilausnum fyrir hagkerfið. Fleiri svona störf þurfum við ekki. Við þurfum störf sem vinna alvöru vinnu sem skilar árangri til framtíðar ekki svona skyndlilausnir sem skila bara leiðinlegum móral og eru mengandi í þokkabót þegar það eru til í Alvörunni aðrir möguleikar. Það er eins og ekkert annað skipti máli en hvernig hægt er að ná í auðvelda peninga. Það eru til fleiri lausnir ekki bara ein. við erum bara svo vön að heyra þessar lausnir bara gamaldags og hallærislegt .. þetta er eina lausnin sem sjálfstæðismenn hafa til að kaupa atkvæði!!!

nei takk Völlurinn! .. hver fann upp á þessu nafni eiginlega?!



Halló Helguvík!

16. apríl 2009
  Ríkisstjórnin ræður dagskrá Alþingis. Hvaða mál eru sett á dagskrá og í hvaða röð. Enn bólar ekkert á því að frumvarpið um álverið og fjárfestingarsamningurinn komi til afgreiðslu. Hvað veldur? Margir furða sig á þessari forgangsröðun ríkisstjórnarinnar sem skapar ömurlega óvissu um framtíð þessa mikilvæga verkefnis sem myndi dæla tugum milljarða - í beinhörðum gjaldeyri - inn í hagkerfið og skapa þúsundir starfa. Er áhuginn ekki til staðar?

Einstök upplifun

Næstkomandi miðvikudag verður sérstakur viðburður þar sem myndlistarkonan Gabríella Friðriksdóttir og dansarinn Erna Ómarsdóttir fara í samstarf og ætla sýna okkur þennan forvitnilega kokteil í Bláalóninu af öllum stöðum..
Ég vonast til að sjá fleiri viðburði sem þessa, því samstarf á milli dansara og myndlistarfólks finnst mér sérstaklega forvitnilegt og ég held að þessi ólíku listfög séu hreint ekki svo ólík. Tónlistarmenn og myndlistarmenn hafa lengi unnið saman á ýmsum viðburðum, en mér finnst tími til komin að sjá dansara og leikara vinna með myndlistarmönnum, því ég er viss um að það muni gefa hvorri listgrein heilmikið vægi fyrir vikið og opna nýja möguleika.

Ég ætla allaveganna að mæta vonandi lætur engin dans og myndlistarunnandi þetta framhjá sér fara


Transaguania - Out of the Blue

Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet & Gabríela Friðriksdóttir

Aðeins þetta eina kvöld 22. Apríl 2009 - miðasala í síma 568 8000 eða hér á netinu

Íslenski dansflokkurinn og Bláa Lónið kynna TransaquaniaOut of the blue. Alþjóðlega þekktir listamenn koma saman ásamt dönsurum flokksins og skapa einstakan dans og listviðburð í lóninu.

Þetta eina kvöld færa listamennirnir Bláa lónið á annað tilverustig og skapa heim þar sem náttúran og maðurinn sameinast í ótrúlegri og einstakri upplifun.

Úr hinum silkikennda bláma lónsins kviknar líf. Á töfrandi hátt birtast áhorfandanum afkvæmi hinnar dulúðgu alkemíu lónsins og í ljósaskiptunum tekur þróunarsaga þessa óræða lífheims, sem er á mörkum vöku og draums, á sig ægifagrar en um leið ógnvekjandi myndir.

Leikhús kvöldsins er lónið sjálft og gestir taka sér sæti í silkikenndu vatninu.

Ekki missa af þessu einstaka kvöldi, safnaðu saman vinahópnum og komdu í Transaquania í lok þessa ótrúlega íslenska vetrar. Að lokinni sýningu verður vetur kvaddur og sumri fagnað í Lava sal Bláa lónsins og allir stíga dans saman.

Sætaferðir með Kynnisferðum – bókanir á www.re.is

Listrænir aðstandendur:
Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir
Tónlist: Ben Frost
Leikmunir og búningar: Gabríela Friðriksdóttir and Raven
Ljósahönnun: Aðalsteinn Stefánsson

Sunday, April 12, 2009

Followers

we&we&we&we&we&we&we&we