Þetta las ég tímaritinu Völlurinn sem þykist fjalla um stjórnmál en fjalla bara um fjármál. Ég gæti ekki verið meira ósammála þessari grein, held að einmitt svona verkefni séu hreint ekki tímabær þar sem fólk er algjörlega komið með upp í kok af flýtilausnum fyrir hagkerfið. Fleiri svona störf þurfum við ekki. Við þurfum störf sem vinna alvöru vinnu sem skilar árangri til framtíðar ekki svona skyndlilausnir sem skila bara leiðinlegum móral og eru mengandi í þokkabót þegar það eru til í Alvörunni aðrir möguleikar. Það er eins og ekkert annað skipti máli en hvernig hægt er að ná í auðvelda peninga. Það eru til fleiri lausnir ekki bara ein. við erum bara svo vön að heyra þessar lausnir bara gamaldags og hallærislegt .. þetta er eina lausnin sem sjálfstæðismenn hafa til að kaupa atkvæði!!!
nei takk Völlurinn! .. hver fann upp á þessu nafni eiginlega?!
Halló Helguvík!
16. apríl 2009