Saturday, April 25, 2009


SAMTÍMAHEIMSPEKI Í SÝNINGU JEANNETTE. JEANNETTE CASTIONI OG ÓLAFUR GÍSLASON SUNNUDAG 26. APRÍL KL. 15

Listamaðurinn Jeannette Castioni og listfræðingurinn Ólafur Gíslason skoða og fjalla um sýningu Jeannette sem nú stendur yfir í D-sal Hafnarhússins. Farið verður í leiðsögn um sýninguna Hver er hræddur við hvern, en að því loknu mun Ólafur fjalla um sýninguna í máli og myndum út frá hugmyndum ítalsaka heimspekingsins Umberto Galimberti um fyrirbærafræði sem komu fram í bókinni Il corpo. Bókin þykir af mörgum tímamótaverk í evrópskri samtímaheimspeki og hefur Ólafur haldið námskeið og rannsakað kenningar hans sem þar koma fram. Sterkt samhengi er á milli kenninga heimspekingsins og innsetningar Jeannette sem skírskota til allra listgreina hvort sem er á sviði myndlistar, leiklistar eða danslistar.

Followers

we&we&we&we&we&we&we&we