Ég vonast til að sjá fleiri viðburði sem þessa, því samstarf á milli dansara og myndlistarfólks finnst mér sérstaklega forvitnilegt og ég held að þessi ólíku listfög séu hreint ekki svo ólík. Tónlistarmenn og myndlistarmenn hafa lengi unnið saman á ýmsum viðburðum, en mér finnst tími til komin að sjá dansara og leikara vinna með myndlistarmönnum, því ég er viss um að það muni gefa hvorri listgrein heilmikið vægi fyrir vikið og opna nýja möguleika.
Ég ætla allaveganna að mæta vonandi lætur engin dans og myndlistarunnandi þetta framhjá sér fara
Transaguania - Out of the Blue
Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet & Gabríela Friðriksdóttir
Aðeins þetta eina kvöld 22. Apríl 2009 - miðasala í síma 568 8000 eða hér á netinu
Íslenski dansflokkurinn og Bláa Lónið kynna Transaquania – Out of the blue. Alþjóðlega þekktir listamenn koma saman ásamt dönsurum flokksins og skapa einstakan dans og listviðburð í lóninu.
Þetta eina kvöld færa listamennirnir Bláa lónið á annað tilverustig og skapa heim þar sem náttúran og maðurinn sameinast í ótrúlegri og einstakri upplifun.
Úr hinum silkikennda bláma lónsins kviknar líf. Á töfrandi hátt birtast áhorfandanum afkvæmi hinnar dulúðgu alkemíu lónsins og í ljósaskiptunum tekur þróunarsaga þessa óræða lífheims, sem er á mörkum vöku og draums, á sig ægifagrar en um leið ógnvekjandi myndir.
Leikhús kvöldsins er lónið sjálft og gestir taka sér sæti í silkikenndu vatninu.
Ekki missa af þessu einstaka kvöldi, safnaðu saman vinahópnum og komdu í Transaquania í lok þessa ótrúlega íslenska vetrar. Að lokinni sýningu verður vetur kvaddur og sumri fagnað í Lava sal Bláa lónsins og allir stíga dans saman.
Sætaferðir með Kynnisferðum – bókanir á www.re.is
Listrænir aðstandendur:
Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir
Tónlist: Ben Frost
Leikmunir og búningar: Gabríela Friðriksdóttir and Raven
Ljósahönnun: Aðalsteinn Stefánsson